fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025

Þingmenn væla yfir kokteilboðum og vilja enn meira frí

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. nóvember 2019 12:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sandkorn:

Ásgerður Gylfadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við Fréttablaðið að margir þingmenn upplifi Alþingi sem ekki „fjölskylduvænan“ vinnustað. Hún kvartar sárann undan vinnuálagi og löngum vinnudegi en nefnir ekki að þingmenn séu mánuðum saman á árinu í fríi. Þingmenn fá svo vel ríflega ein milljón króna í mánaðarlaun.

Ásgerður er fyrsti flutningsmaður frumvarps um að skipaður verði starfshópur um að Alþingi verði „fjölskylduvænn“ vinnustaður. Svo virðist sem það þýði færri þingfundi á kvöldin. „Það þarf að vera meiri fyrirsjáanleiki í skipulagi vinnunnar þannig fólk hafi tíma til að undirbúa sig innan eðlilegs vinnutíma. Þingmannsstarfið er 24/7 starf,“ hefur Fréttablaðið eftir henni. Hún nefnir sem dæmi að þingmenn þurfi að mæta á fjölda viðburða. Sem sagt kokteilboð. Greyin.

Líkt og fyrr segir þá er heldur erfitt að færa rök fyrir því að þingmennska, með að lágmarki 1,1 milljón krónur í laun, sé mikil kvöl og pína. Meðan eðlilegt fólk þarf að vinna myrkrana á milli fyrir lægri laun þá byrjar jólafríið hjá Ásgerði og kollegum hennar yfirleitt um 14. desember. Lýkur svo um mánuði síðar.

Það er ekki furða að álit alþýðunnar á Alþingi sé í ruslflokk þegar helsta baráttumál sumra þingmanna sé að gera lífið enn auðveldara fyrir þá sjálfa.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ekki neinn fögnuður en leikmenn United fá grillveislu ef þeir vinna úrslitaleikinn

Ekki neinn fögnuður en leikmenn United fá grillveislu ef þeir vinna úrslitaleikinn
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Gagnrýnir stjórnvöld og sakar um mannvonsku – „Leggja líf ungs fólks í hættu vegna þess að þeim líkar ekki við fyrirtækið sem bjargar þeim“

Gagnrýnir stjórnvöld og sakar um mannvonsku – „Leggja líf ungs fólks í hættu vegna þess að þeim líkar ekki við fyrirtækið sem bjargar þeim“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Verðlag á matvöru heldur áfram að hækka – Innlend dagvara hækkar hraðar en erlend

Verðlag á matvöru heldur áfram að hækka – Innlend dagvara hækkar hraðar en erlend
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Bonnie Blue braut af sér um helgina

Bonnie Blue braut af sér um helgina
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Þetta er upphæðin sem Real Madrid ætlar að bjóða Liverpool til að fá Trent með á HM

Þetta er upphæðin sem Real Madrid ætlar að bjóða Liverpool til að fá Trent með á HM