fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
433Sport

Rooney mættur til æfinga til að bæta ekki á sig: Löglegur eftir tvo mánuði

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. nóvember 2019 10:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wayne Rooney er mættur til vinnu hjá Derby, tveimur mánuðum áður en hann verður löglegur á Pride Park. Rooney mun byrja að spila með Derby í janúar, þegar félagaskiptaglugginn lokar.

Rooney þraukaði bara í eitt og hálft ár í landi hina frjálsu, þar lék hann með DC United. Eiginkonu Rooney leið ekki vel í landi hina hugrökku og vildi heim til Englands.

Rooney er 34 ára gamall en hann verður spilandi þjálfari hjá Derby, hann mun þéna 100 þúsund pund á viku sem gerir hann að launahæsti leikmanni deildarinnar.

Rooney fór í stutt frí eftir að tímabilinu með DC United lauk en er mættur til æfinga. Derby vill að Rooney æfi af krafti, hann hefur alla tíð verið fljótur að detta úr formi, þegar hann er í fríi. Kílóin koma hratt á þennan öfluga sóknarmann

Rooney er einn allra besti knattspyrnumaður í sögu Englands en hann átti magnaðan feril með Manchester United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sagður vilja fara til Liverpool en mörg stórlið hafa áhuga

Sagður vilja fara til Liverpool en mörg stórlið hafa áhuga
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Í framboði til forseta og ætlar að reka þjálfarann ef hann nær kjöri – Með tvö stór nöfn á blaði

Í framboði til forseta og ætlar að reka þjálfarann ef hann nær kjöri – Með tvö stór nöfn á blaði
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Emil Ásmundsson yfirgefur sviðið aðeins þrítugur

Emil Ásmundsson yfirgefur sviðið aðeins þrítugur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hefur sérstakar áhyggjur af þessum nýja leikmanni United – „Það þarf að laga þetta og það strax“

Hefur sérstakar áhyggjur af þessum nýja leikmanni United – „Það þarf að laga þetta og það strax“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Tvö stórlið vildu Sterling í sumar – Æfir nú einn og hefur ekki séð Maresca í fleiri mánuði

Tvö stórlið vildu Sterling í sumar – Æfir nú einn og hefur ekki séð Maresca í fleiri mánuði
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Rekinn í síðustu viku en gæti fengið starf í London á næstunni

Rekinn í síðustu viku en gæti fengið starf í London á næstunni