Kevin á tvo syni með Britney, þá Jayden James Federline og Sean Preston Federline en þeir eru 12 og 13 ára gamlir. Samkvæmt heimildum E! News lagði Kevin fram kæru á hendur Jamie Spears þann 25. ágúst.
Atvikið sem var kært fór fram á heimili Jamie en á TMZ er sagt að hann hafi á einhverjum tímapunkti lagt hendur á Sean. Britney Spears hefur enn ekki talað um málið opinberlega.
Samkvæmt E! News þá hefur Kevin fengið nálgunarbann á fyrrverandi tengdaföður sinn fyrir syni sína. Heimildarmaður þeirra segir að hvorki Jamie né Britney hafi verið mótfallin nálgunarbanninu en bannið gerir það að verkum að Jamie getur ekki verið með barnabörnunum sínum og bannar honum að vera forráðamaður þeirra á meðan þau eru í umsjón Britney.
Í dómskjölum sem E! News hefur undir höndum má sjá að fyrrverandi hjónin hafa gert nýjan samning um forsjá yfir börnunum sínum. Kevin fær núna 70% forsjá yfir þeim á meðan Britney hefur einungis 30% forsjá yfir börnunum. Áður höfðu þau samþykkt að skipta forsjánni jafnt á milli sín.