Bjark Már Sigvaldason, fyrrum knattspyrnumaður hefur unnið hug og hjörtu allra sem fylgst hafa með baráttu hans við erfið veikindi.
Bjarki hefur undanfarin sex ár háð erfiða baráttu við krabbamein og nú segja læknar að ekkert sé við ráðið og hann eigi stutt eftir
Bjarki fékk þau skilaboð á dögunum að hann ætti aðeins nokra mánuði eftir en hann og Ástrós, unnusta hans eignuðust sitt fyrsta barn á síðasta ári.
Bjarki var afar efnilegur knattspyrnumaður sem ólst upp í HK en hann á sterkan kjarna af vinum sem standa þétt við bak hans.
Vilhjálmur og Þórhallur Sigurgeirssynir félagar hans úr HK hafa nú gert myndband um knattspyrnuferil hans. Á dögunum fór Bjarki með fjölskyldu sinni í viðtal í Ísland í dag, það hreyfði við mörgum. ,,Ég táraðist bara þegar ég horfði á það,“ sagði einn viðmælanda í myndinni um Bjarka sem vinir hans gerðu.
,,Ég vona að Bjarki viti það að hann er fyrirmynd fyrir svo marga,“ sagði annar.
Styrktarsjóður Bjarka og fjölskyldu
B: 130-26-20898 / KT: 120487-2729
Myndina má sjá hér að neðan.