Gylfi Þór Sigurðsson skráði sig í sögubækurnar í ensku úrvalsdeildinni síðastliðin þriðjudag þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Everton á Cardiff. Með mörkunum varð Gylfi markahæsti Íslendingurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, stærstu og vinsælustu íþróttakeppni í heimi, og þar er Gylfi nú efstur á blaði meðal Íslendinga. Gylfi hefur nú skorað 57 mörk í deildinni en Eiður Smári skoraði 55 mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Mörk fyrir þrjú félög
Gylfi hefur skorað mörkin 57 fyrir þrjú félög, hann reið á vaðið með Swansea árið 2012 þegar hann kom á láni til félagsins frá Hoffenheim. Gylfi sló strax í gegn í deildinni og skoraði 7 mörk í 18 leikjum fyrir Swansea. Hann skoraði að meðaltali 0,39 mörk í leik sem er hans besti árangur til þessa, að meðtöldu þessu tímabili. Frammistaða Gylfi vakti mikla athygli og var hann eftirsóttur biti um sumarið. Bæði Liverpool og Tottenham vildu fá Gylfa sem ákvað á endanum að ganga í raðir Tottenham, stórs félags í Lundúnum sem var reiðubúið að greiða talsvert hærri laun en hið sögufræga félag í Bítlaborginni.
Erfið dvöl í Lundúnum:
Gylfi lék í tvö tímabil með Tottenham en þar fékk hann aldrei að láta ljós sitt skína almennilega og var oftar en ekki að spila út úr stöðu. Fyrsta tímabil Gylfa með Tottenham er það slakasta sem hann hefur átt í ensku úrvalsdeildinni þegar kemur að markaskorun. Gylfi skoraði að meðaltali 0,09 mörk í leik, hann lék 33 leiki og skoraði í þeim þrjú mörk. Á seinna tímabilinu, eða frá 2013 til 2014, skoraði Gylfi fimm mörk í 25 leikjum. Hann hafði möguleika á að halda áfram hjá Tottenham en kaus að fara aftur til Swansea, heim í sveitina þar sem honum hafði liðið vel.
Þrjú frábær tímabil í Wales:
Gylfi fór strax á flug í Wales og átti fínasta fyrsta tímabil, en annað tímabilið í endurkomunni var það besta hjá Swansea. Þar skoraði hann ellefu deildarmörk, sem eru jafn mörg mörk og á þessu tímabili. Hann var leiðtogi Swansea innan vallar, tímabilið á eftir var ekki síðra og aftur fóru stærri félög að banka á dyrnar. Leicester lagði mikið kapp á að kaupa Gylfa, en Everton hafði betur. Til þess þurfti félagið líka að greiða metfé, Gylfi kostaði 45 milljónir punda og er enn í dag dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Ósanngjörn gagnrýni:
Fyrsta tímabil Gylfa með Everton var nokkuð erfitt. Hann missti af undirbúningstímabilinu vegna þess að langan tíma tók að semja um kaupverðið. Gengi Everton var síðan slakt og hafði Gylfi þrjá knattspyrnustjóra í Bítlaborginni á sínu fyrsta tímabili. Mörkin voru fjögur sem Gylfi skoraði og slæm meiðsli í lok tímabils voru lýsandi fyrir erfiða leiktíð. Gengi Everton á núverandi tímabili hefur svo verið undir væntingum og hefur Gylfi mátt þola hvað mesta gagnrýni vegna þess. Hún er að flestu leyti afar ósanngjörn. Gylfi hefur lagt allt í sölurnar í langflestum leikjum, skorað ellefu mörk sem miðjumaður og dregið vagninn. Mörkin tvö gegn Cardiff hafa líka opnað augu enskra blaðamanna og stuðningsmanna Everton, þar hefur fólk áttað sig á því hver sé stjarnan í bláa hluta Bítlaborgarinnar.
Swansea – 2012
Leikir 18
Mörk 7
Mark að meðaltali í leik 0,39
Skallamörk 1
Mörk með hægri fæti 5
Mörk með vinstri fæti 1
Mörk úr vítum 0
Mörk úr aukaspyrnum 1
Tottenham – 2012/2013
Leikir 33
Mörk 3
Mark að meðaltali í leik 0,09
Skallamörk 0
Mörk með hægri fæti 3
Mörk með vinstri fæti 0
Mörk úr vítum 0
Mörk úr aukaspyrnum 0
Tottenham – 2013/2014
Leikir 25
Mörk 5
Mark að meðaltali í leik 0,20
Skallamörk 0
Mörk með hægri fæti 3
Mörk með vinstri fæti 2
Mörk úr vítum 0
Mörk úr aukaspyrnum 0
Swansea 2014/2015
Leikir 32
Mörk 7
Mark að meðaltali í leik 0,22
Skallamörk 0
Mörk með hægri fæti 5
Mörk með vinstri fæti 2
Mörk úr vítum 0
Mörk úr aukaspyrnum 2
Swansea 2015/2016
Leikir – 36
Mörk 11
Mark að meðaltali í leik 0,31
Skallamörk 1
Mörk með hægri fæti 9
Mörk með vinstri fæti 1
Mörk úr vítum 3
Mörk úr aukaspyrnum 2
Swansea 2016/2017
Leikir 38
Mörk 9
Mark að meðaltali í leik 0,24
Skallamörk 0
Mörk með hægri fæti 5
Mörk með vinstri fæti 4
Mörk úr vítum 3
Mörk úr aukaspyrnum 2
Everton 2017/2018
Leikir 27
Mörk 4
Mark að meðaltali í leik 0,15
Skallamörk 0
Mörk með hægri fæti 4
Mörk með vinstri fæti 0
Mörk úr vítum 0
Mörk úr aukaspyrnum 0
Everton 2018/2019
Leikir 28
Mörk 11
Mark að meðaltali í leik 0,39
Skallamörk 1
Mörk með hægri fæti 7
Mörk með vinstri fæti 3
Mörk úr vítum 2
Mörk úr aukaspyrnum 0
Svona hefur Gylfi bætt met Eiðs Smára:
Mörk 57
Mark að meðaltali í leik 0,24
Skallamörk 3
Mörk með hægri fæti 41
Mörk með vinstri fæti 13
Mörk úr vítum 8
Mörk úr aukaspyrnum 7
Skot að marki 536
Skot á markið 198
Skot í tréverkið 19
Misnotuð dauðafæri 25