fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
433Sport

Nafn hans hefur bara stækkað eftir að hún sakaði hann um hrottalega nauðgun: ,,Hann reif í nærbuxurnar mínar“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. febrúar 2019 12:00

Mayorga og Ronaldo sama kvöld og hún sakar hann um að hafa nauðgað sér.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður allra tíma var í október á síðasta ári sakaðu um hrottalega nauðgun. Hann hefur alla tíð neitað sök.

Kathryn Mayorga segir að Ronaldo hafi nauðgað sér árið 2009, atvikið á að hafa átt sér stað í Las Vegas.

Þar var Ronaldo í sumarfríi með vinum sínum áður en hann samdi við Real Madrid og varð dýrasti knattspyrnumaður í heimi. Lýsingarnar frá Mayorga eru afar óhugnanlegar en þar fer hún yfir málið í öllum smáatriðum. Hún skrifaði undir bréf þess efnis um að tjá sig aldrei um málið, fyrir það fékk hún talsverðar fjárhæðir.

Atvikið á að hafa átt sér stað þann 12. júní árið 2009, Mayorga var 25 ára á þeim tíma og vann við það að lokka gesti inn á skemmtistað. Þar hitti hún Ronaldo, á Rain skemmtistaðnum.

Frá því að Mayorga sakaði Ronaldo opinberlega um nauðgun hefur nafn Ronaldo haldið áfram að stækka og stækka. Fylgjendum hans á Instagram hefur fjölgað um 13 milljónir, þetta vekur athygli en Ronaldo er mjög stórt nafn þegar kemur að því að auglýsa vörur. Þannig er hann með stóra samninga við Nike og fleiri fyrirtæki.

Atvikið á að hafa átt sér stað þann 12. júní árið 2009, Mayorga var 25 ára á þeim tíma og vann við það að lokka gesti inn á skemmtistað. Þar hitti hún Ronaldo, á Rain skemmtistaðnum.

Þau fóru síðan á hótelið þar sem Ronaldo dvaldi og þar á hin meinta nauðgun að hafa átt sér stað. Ronaldo hefur alltaf neitað sök en það eina sem er ljóst er að hann greiddi Mayorga 375 þúsund dollara til að segja ekki orð. Nú þegar hún hefur tjáð sig ber henni að endurgreiða Ronaldo alla þessa upphæð.

Mayorga kveðst hafa farið inn á klósett til að skipta um föt þegar Ronaldo gekk til hennar. Limur hans hafi verið kominn út úr buxunum.

,,Hann grátbað mig í 30 sekúndur að snerta liminn sinn, þegar ég neitaði því. Þá bað hann mig um að totta sig, ég hlóg að honum. Ég hélt að þetta væri grín. Hann sagðist leyfa mér að fara ef ég myndi kyssa hann, ég sagðist kyssa hann en ekki snerta liminn hans. Kossinn gerði hann enn æstari og hann fór að vera mjög ágengur, hann reyndi að snerta mig en ég ýtti honum frá mér og sagði nei.“

Hún segir að vinkona sín hafi komið inn og allt hafi róast, hún hélt að allt væri búið. ,,Hann dróg mig inn í herbergi, ég var ekki hrædd. Ég hélt að honum væri ekki alvara og sagði honum að ekkert myndi gerast.“

,,Ég snéri mér frá honum, hann reif í nærbuxurnar mína. Ég reyndi að fara í burtu og hélt fyrir leggöngin mín. Hann stökk á mig.“

Mayorga heldur því fram að Ronaldo hafi nauðgað sér í endaþarminn, án smokks og ekki notað sleipiefni. ,

,,Eftir að hann nauðgaði mér, þá leyfði hann mér ekki að fara. Hann kallaði mig elskuna sína, hann baðst afsökunar. Hann sagðist vera góður strákur fyrir utan eitt prósent.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt klappað og klárt – United og Leipzig ná samkomulagi um kaupverðið

Allt klappað og klárt – United og Leipzig ná samkomulagi um kaupverðið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sjáðu stórfurðulegt atvik í Úlfarsárdal – Rikki G trúði ekki eigin augum

Sjáðu stórfurðulegt atvik í Úlfarsárdal – Rikki G trúði ekki eigin augum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Dagný grætur í hjartnæmu kveðjumyndbandi

Dagný grætur í hjartnæmu kveðjumyndbandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Hafnað fjölda tilboða eftir brottför frá United – Býðst nú að vera áfram í úrvalsdeildinni

Hafnað fjölda tilboða eftir brottför frá United – Býðst nú að vera áfram í úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Launapakki Darwin Nunez í Sádí opinberaður – Fær þrefalt meira en hjá Liverpool og þénar meira en bestu leikmenn heims

Launapakki Darwin Nunez í Sádí opinberaður – Fær þrefalt meira en hjá Liverpool og þénar meira en bestu leikmenn heims
433Sport
Í gær

Fyrrum leikmaður Arsenal og Liverpool gæti snúið aftur

Fyrrum leikmaður Arsenal og Liverpool gæti snúið aftur
433Sport
Í gær

Uppselt í Fossvoginum er Danirnir koma í heimsókn

Uppselt í Fossvoginum er Danirnir koma í heimsókn