fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
433Sport

Sjáðu hjartnæma mynd sem systir Sala birti: Hundurinn hans bíður eftir honum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. febrúar 2019 11:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskylda Emiliano Sala bíður frekari fregna eftir að flugvélin sem hann var um borð í fannst á hafsbotni á sunnudag. Leitað hafði verið að vélinni í tæpar tvær vikur þegar hún fannst

Emiliano Sala og David Ibbotson ferðuðust með vélinni frá Nantes til Cardiff. Þeir fóru í loftið þann 21. janúar síðastliðinn en flugvélin komst aldrei á leiðarenda og hefur hrapað yfir Ermasundinu.

Sala og Ibbotson voru einir um borð en sá fyrrnefndi var nýbúinn að skrifa undir samning við Cardiff í ensku úrvalsdeildinni. Vélin fannst í fyrradag og í dag hefur verið greint frá því að búið sé að finna eitt lík hjá vélinni, ekki hefur verið greint frá því hvort það sé Sala eða Ibbotson.

Líkið sást með myndavél sem fór á hafsbotn og skoðaði vélina og þar í kring. Frekari tíðinda af þessum harmleik má vænta í dag. Það var lítill bátur sem rakst á part úr flugvélinni í fyrradag en harmleikurinn hefur haft mikil áhrif á knattspyrnuheiminn.

Sala hafði gengið í raðir Cardiff þar sem Aron Einar Gunnarsson spilar en átti eftir að mæta á sína fyrstu æfingu.

Romina Sala, systir hans hefur birt mynd af hundinum hans þar sem hann horfir út um gluggan og bíður eftir eiganda sínum.

Ein af ástæðum þess að Sala fór aftur til Frakklands frá Cardiff eftir að hafa skrifað undir, var til að ganga frá því að fá Nala með sér til Wales. Sagt er að þeir hafi verið afar nánir.

Mynd af hundinum að leita að eiganda sínum er hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sagður vilja fara til Liverpool en mörg stórlið hafa áhuga

Sagður vilja fara til Liverpool en mörg stórlið hafa áhuga
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Í framboði til forseta og ætlar að reka þjálfarann ef hann nær kjöri – Með tvö stór nöfn á blaði

Í framboði til forseta og ætlar að reka þjálfarann ef hann nær kjöri – Með tvö stór nöfn á blaði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Emil Ásmundsson yfirgefur sviðið aðeins þrítugur

Emil Ásmundsson yfirgefur sviðið aðeins þrítugur
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Hefur sérstakar áhyggjur af þessum nýja leikmanni United – „Það þarf að laga þetta og það strax“

Hefur sérstakar áhyggjur af þessum nýja leikmanni United – „Það þarf að laga þetta og það strax“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tvö stórlið vildu Sterling í sumar – Æfir nú einn og hefur ekki séð Maresca í fleiri mánuði

Tvö stórlið vildu Sterling í sumar – Æfir nú einn og hefur ekki séð Maresca í fleiri mánuði
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Rekinn í síðustu viku en gæti fengið starf í London á næstunni

Rekinn í síðustu viku en gæti fengið starf í London á næstunni