Tímarnir breytast og mennirnir með, það á við um margt í okkar lífi og sérstaklega hvernig fjallað er um mál líðandi stundar. Á árum áður þótti ekkert mál að fjalla um svart fólk sem negra og fleira í þeim dúr. Slíkt efni eldist afar illa miðað við hvernig samfélag okkar er í dag. Árið 1966 var fjallað, í Vísi, um einvígi Vals og Standard Liege í Evrópukeppni, þar vann belgíska félagið 8-1 sigur á Val. „Ungur negri skoraði fimm mörk gegn Val,“ var fyrirsögnin á grein Vísis sem birtir í blaðinu þann 13. september árið 1966.
Brasilíumaðurinn var langbestur
Sagt var að þessi dökki maður hefði nýlega komið frá Inter á Ítalíu. „Það var ungur negri, sem nýlega hóf að leika fyrir Standard Liege, sem átti hvað mestan þáttinn í að Valur tapaði svo stórt í síðari leik liðanna í Evrópubikarkeppninni fyrir nokkrum dögum. Þessi þeldökki maður, sem er Brazilíumaður og ráðgert er að kaupa til Standard, skoraði 5 mörk gegn Val og var langbezti maður vallarins. Sá kvittur gaus upp að negrinn hefði verið ólöglegur liðsmaður, og því bæri Val að kæra leikinn. Ekki gaf Ægir Ferdinandsson, einn fararstjóranna, mikið út á það,“ sagði í fréttinni.
Margt rangt í fréttinni
Þegar sagan er skoðuð er hins vegar margt rangt sem kemur fram í fréttinni, þessi ungi Brasilíumaður sem Vísir fjallaði um átti að hafa komið frá Inter. Standard Liege fékk ekki neinn leikmann frá Inter þetta árið en félagið fékk vissulega Germano sem var frá Brasilíu, hann kom frá AC Milan og hann lék í leiknum en skoraði ekkert mark. Það var Roger Claessen sem skoraði fimm mörk í leiknum, hann var ekki dökkur á hörund og kom frá Belgíu. Í frétt Vísis var sagt að Reynir Jónsson hefði skorað mark Vals í 8-1 tapinu en það var í raun Björn Júlíusson sem skoraði.
Húðlitur en ekkert nafn
Árið 1980 fjallaði Tíminn um nýjan leikmann sem Fram var að fá í körfubolta, ekki var vitað um nafn hans en húðliturinn var á hreinu í blaðinu. „Það er loks ljóst að Framarar hafa ráðið sér erlendan leikmann sem mun leika með liðinu í komandi Íslandsmóti í körfuknattleik. Ekki er enn vitað um nafn hans en hann er 1,91 metri á hæð og negri og leikur stöðu bakvarðar. Að sögn Framara er hann mjög sterkur leikmaður sem mun örugglega koma til með að styrkja lið þeirra mikið í vetur,“ sagði í umfjöllun Tímans árið 1980.
Taldi húðlitinn hamla Duranona
Í DV árið 1986 var fjallað um 13 mörk sem Roberto Julián Duranona skoraði fyrir Kúbu gegn Austur-Þýskalandi. Bogdan Kowalczyk, sem var þá landsliðsþjálfari Íslands, trúði þessu bara ekki, að þeir sem væru dökkir á hörund gætu ekki spilað handbolta, eins og hann orðaði það. Duranona átti síðar eftir að spila fyrir íslenska landsliðið og verða afar vinsæll hjá þjóðinni. „Skoraði negri 13 mörk?“ var fyrirsögnin á frétt DV árið 1986. „Það var nokkuð skondið það sem Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari Íslands, sagði þegar hann frétti af 13 mörkum Kúbumannsins gegn Austur-Þjóðverjum. Bogdan sagði: „Skoraði negri 13 mörk? Það getur ekki verið. Negrar geta ekki spilað handknattleik“.“