fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
433Sport

Egill skammar Mörtu Maríu: ,,Undarleg markaðssetning að skrökva íbúðakaupum upp á þekkt fólk“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 17. október 2018 09:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti mikla athygli á vef Morgunblaðsins í gær þegar sagt var að David og Victoria Beckham hefðu skoðað íbúðir hér á landi, með það í huga að kaupa sér fasteign hér á landi.

Sagt var að hjónin væru að skoða það að kaupa íbúð á Hafnartorgi en David Beckham kom til landsins í sumar. Þar fór hann í laxveiði með Björgólfi Thor Björgólfssyni en skoðaði ekki neinar íbúðir.

Hjónin eru á meðal frægustu einstaklinga í heiminum, Beckham var frábær knattspyrnumaður og Victoria var söngkona í Spice Girl.

,,Í gær skrifaði ég lítinn pistil, frekar alvörulausan, vegna fréttar um að hjónin David og Victoria Beckham hefðu skoðað íbúð á Hafnartorgi – væntanlega þá með það fyrir augum að kaupa. Í fréttinni var beinlínis fullyrt að þau hefðu farið og kíkt á penthouse-íbúðina í byggingum. Það var líka sagt að þau hefðu komið hingað vegna vinskapar við Björgólf Thor Björgólfsson,“ skrifar Egill Helgason í pistli sínum sem má lesa hérna.

,,Það er undarleg markaðssetning að skrökva íbúðakaupum upp á þekkt fólk, í þeirri von að eftirspurnin aukist. Beckham-hjónin hafa ekki skoðað neinar íbúðir við Hafnartorg, það veit ég fyrir víst. Svo fólk verður bara að taka ákvörðun um fjárfestingar þarna út frá, tja, kannski ööörlítið skynsamlegri forsendum?,“ segir Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona Björgólfs.

Það var Marta María Jónasdóttir sem skrifaði fréttina á mbl.is í gær. ,,Nú ber­ast frétt­ir af því að Beckham-hjón­in hafi áhuga á að kaupa fast­eign á Íslandi og hafi skoðað pent­hou­se-íbúðina á Hafn­ar­torgi fyr­ir sig og fjöl­skyld­una. Ef Beckham-hjón­in slá til er eitt víst og það er að stutt er fyr­ir þau í H&M Home til að kaupa inn og svo er líka stutt yfir til Björgólfs Thors og Krist­ín­ar þar sem þau eiga fast­eign­ina sem stend­ur við Frí­kirkju­veg 11,“ skrifaði Marta í frétt sinni.

Egill Helgason bendir hins vegar á það í pistli sínum að Marta hafi nú eytt fréttinni.

Hér má lesa fréttina sem Marta María hefur nú eytt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fullyrt að Bruno sé meiddur og missi af sínum fyrsta United leik

Fullyrt að Bruno sé meiddur og missi af sínum fyrsta United leik
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Réttarhöld yfir Kolbeini um miðjan mánuðinn

Réttarhöld yfir Kolbeini um miðjan mánuðinn
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Virðist ekki mjög spenntur fyrir því að snúa aftur til stórliðsins

Virðist ekki mjög spenntur fyrir því að snúa aftur til stórliðsins
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Liverpool en mun halda kyrru fyrir

Var sterklega orðaður við Liverpool en mun halda kyrru fyrir
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sakar Arnar og Víking um að sýna vott af hroka í gær

Sakar Arnar og Víking um að sýna vott af hroka í gær
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Magnaður Salah setti met í ensku úrvalsdeildinni

Magnaður Salah setti met í ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Í gær

Stjarnan var ‘hökkuð’ og óvænt færsla birtist á samskiptamiðlum – ,,Ég er mættur!“

Stjarnan var ‘hökkuð’ og óvænt færsla birtist á samskiptamiðlum – ,,Ég er mættur!“