fbpx
Laugardagur 04.maí 2024

Jólin nálgast – Hvar er best og ódýrast að kaupa almennileg fjölskyldunáttföt?

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 3. október 2018 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er staðreynd að jólin nálgast óðfluga og verslanir eru þegar byrjaðar að stilla upp margvíslegum jólavarningi. Einnig hafa borist óstaðfestar fregnir af jólalagi í spilun á Léttbylgjunni. Það getur tekið langan tíma að panta vörur af netinu og það er ekki eftir neinu að bíða miðað við sívaxandi raðir á pósthúsum landsins í aðdraganda jóla. Eins og sumir hafa lent í er ansi glatað að fá jólagjafir eða sniðugu möndlugjöfina í hús um miðjan janúar.

Fjölskylduhefðir í tengslum við jólin eru jafn fjölbreyttar og fjölskyldurnar eru margar, ein nýjasta hefðin eru eins jólanáttföt fyrir alla fjölskylduna; yndislega hallærisleg, Instagramvæn og mjúk til að klæðast á meðan það er verið að skreyta jólatréð. Bleikt tók saman nokkra staði þar sem er hægt að verða sér út um slík náttföt og gerði lauslega verðkönnun.

Það er að sjálfsögðu allt morandi í jólanáttfötum á AliExpress. Þar á meðal annars finna þessi dýrindislegu jólanáttföt með jólatrjám. Fyrir þriggja manna fjölskyldu kostar settið 48 dollara, eða 5.500 krónur fyrir toll.

Jólanáttföt geta verið lúmskt dýr, sérstaklega þegar sendingarkostnaður bætist ofan á. Til dæmis kosta þessi föt hjá Etsy 134 dollara, eða 15.200 krónur, fyrir þriggja manna fjölskyldu.

Hjá Etsy er hægt að fá þessar elg-jólapeysur fyrir par á 52 dollara, eða 5.900 krónur fyrir toll.

Vefverslunin PatPat lofar að þessi föt séu á tilboði og segir í auglýsingum að settið kosti aðeins 19,99 dollara fyrir fjölskylduna. Þegar vörurnar eru svo settar í körfu og sendingarkostnaður bætist við kemur í ljós að heildarkostnaðurinn fyrir þriggja manna fjölskyldu er að nálgast 12.000 krónur og það fyrir toll.

Fyrir þá sem ætla í Primark fyrir jólin þá kosta náttfötin á bilinu 10 til 12 pund fyrir fullorðna og allt niður í 7 pund fyrir börn. Það þýðir að náttfötin kosta rúmlega 4.000 krónur með sendingarkostnaði fyrir toll.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Allt logar út af meintum árásum „skrímsladeildarinnar“ – Stefán Einar svarar fyrir sig – „Það sýnir hverskonar ógeð þeir eru“

Allt logar út af meintum árásum „skrímsladeildarinnar“ – Stefán Einar svarar fyrir sig – „Það sýnir hverskonar ógeð þeir eru“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins húðskammar flokkinn sinn – Orðinn hundleiður á að ósanngjörnum sköttum og sýndarstjórnmálum „sem enginn kaupir lengur“

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins húðskammar flokkinn sinn – Orðinn hundleiður á að ósanngjörnum sköttum og sýndarstjórnmálum „sem enginn kaupir lengur“
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Merk uppgötvun í 100 ára ómerktri gröf í kirkjugarði við geðsjúkrahús

Merk uppgötvun í 100 ára ómerktri gröf í kirkjugarði við geðsjúkrahús
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær

Búinn að vinna gullhanskann eftir leikinn í gær
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fyrirliði Real Madrid yfirgefur félagið – Vill aðeins semja í einu landi

Fyrirliði Real Madrid yfirgefur félagið – Vill aðeins semja í einu landi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fertugur í varnarlínu Manchester United? – ,,Toppleikmaður svo lengi sem heilsan er til staðar“

Fertugur í varnarlínu Manchester United? – ,,Toppleikmaður svo lengi sem heilsan er til staðar“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Miklar breytingar gerðar á skriflega bílprófinu – Gert rafrænt og spurningum breytt

Miklar breytingar gerðar á skriflega bílprófinu – Gert rafrænt og spurningum breytt

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.