„Þeir komu hingað til að eyðileggja fótboltann,“ segir rússneski íþróttafréttamaðurinn Vasily Utkin í þrumuræðu um íslenska landsliðið í fótbolta. Vasily þessum þótti ekki mikið til spilamennsku íslenska liðsins koma í leiknum gegn Argentínu á laugardag.
Vasily heldur úti YouTube-rás, sem hátt í 40 þúsund notendur eru áskrifendur að, og í myndskeiði eftir leikinn gegn Argentínu hjólaði hann rækilega í íslenska liðið.
„Þeir geta varist loftárásum en hver getur dáðst að því? Af hverju eruð þið að trufla okkur þegar við viljum horfa á fótbolta? Því fyrr sem þið pakkið niður og fljúgið heim á eldfjallið ykkar, því betra,“ segir Vasily sem er þekktur íþróttafréttamaður í Rússlandi.
Þessi einræða hans um íslenska liðið hefur fallið misjafnlega í kramið hjá áhorfendum hans á YouTube. Hægt er að gefa myndböndum á YouTube annað hvort þumal upp eða þumal niður sem er þá til marks um það hvort viðkomandi hafi líkað við myndbandið. Af þeim rúmlega fjögur þúsund sem hafa fellt sinn dóm hafa um tvö þúsund gefið því þumal niður.
Íslenska liðinu hefur verið hrósað í hástert eftir leikinn við Argentínu enda engin furða. Liðið var að spila sinn fyrsta leik á heimsmeistaramóti, gegn liði sem komst í úrslitaleik HM árið 2014 og með einn besta knattspyrnumann sögunnar innanborðs. Íslenska liðið komst vel frá leiknum og skapaði sér fín færi. En Vasily er alveg sama um allt slíkt tal og talar raunar niður til íslensku þjóðarinnar. Segir okkur koma af víkingum sem fundu land sem varla var hægt að búa á. Við séum fólkið sem hélt ekki áfram til Ameríku á tímum landafundanna.
Myndbandið má sjá hér að neðan en hafa ber í huga að það er á rússnesku.
Russian journalist Vasily Utkin about Iceland: ,,They came to destroy football. They can resist fire from artillery weapons but who can admire that? Why disturbing us when we want to watch football? The sooner you pack your bags and fly home to your volcanoes, the better” ??? pic.twitter.com/7pz4B5Lh5v
— Icelandic Football (@icelandfootball) June 18, 2018