fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum landsliðsþjálfari Englands, Roy Hodgson, hefur snúið aftur í þjálfun og tekið við Bristol City til loka tímabilsins.

Hodgson, sem er 78 ára, hefur verið ráðinn sem bráðabirgðastjóri og mun stýra liðinu í síðustu sjö leikjum tímabilsins. Á sama tíma tilkynnti félagið um brottrekstur fyrrverandi þjálfara, Gerhard Struber.

Hodgson hefur ekki stýrt liði síðan í febrúar 2024 þegar hann lét af störfum hjá Crystal Palace eftir sitt annað tímabil þar. Bristol City er sem stendur í 16. sæti ensku B-deildarinnar.

Forstjóri félagsins, Charlie Boss, sagði ráðninguna snúast um meira en skammtímaárangur. „Roy kemur með mikla reynslu og mun hjálpa okkur að móta þá menningu og gildi sem við þurfum til að ná árangri í framtíðinni,“ sagði hann.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hodgson tengist Bristol City. Hann starfaði áður hjá félaginu á níunda áratugnum, fyrst sem aðstoðarþjálfari og síðar sem aðalþjálfari, þó stutt hafi verið í starfi þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Niðurlægðu yfirmann sinn í kjölfar framhjáhalds hans – Svona brást hann við

Niðurlægðu yfirmann sinn í kjölfar framhjáhalds hans – Svona brást hann við
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Liverpool hefur einnig áhuga – Liðsfélagar hans einnig á blaði

Liverpool hefur einnig áhuga – Liðsfélagar hans einnig á blaði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool bálreiðir

Stuðningsmenn Liverpool bálreiðir
433Sport
Í gær

Casemiro fellur frá ákvæði í samningi við United svo hann geti spilað síðustu leikina

Casemiro fellur frá ákvæði í samningi við United svo hann geti spilað síðustu leikina
433Sport
Í gær

Hótar málsókn eftir að sagt var að fyrirsætur hafi verið á heimili hans

Hótar málsókn eftir að sagt var að fyrirsætur hafi verið á heimili hans