fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
433Sport

Bjarni sat í sófanum með ungum syni sínum þegar fréttirnar bárust á þriðjudag – „Þá var það samt skellur að fá það staðfest“

433
Fimmtudaginn 26. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Helgason stjörnublaðamaður Morgunblaðsins skrifar skemmtilega grein í blað dagsins. Þar fer hann yfir tíðindin þriðjudagsins þegar Liverpool staðfesti að Mo Salah færi frá félaginu í sumar.

Salah skipar sér í hóp bestu leikmanna í sögu Liverpool, hann hefur hins vegar ekki fundið taktinn í ár og fær að fara frítt frá félaginu næsta sumar.

„Ég sat uppi í sófa með sjö ára gömlum syni mínum þegar ég sá tilkynningu frá Englandsmeisturum Liverpool um að egypski knattspyrnumaðurinn Mohamed Salah væri á förum frá félaginu í sumar. „Nei, nei, nei, Salah er að fara,“ sagði ég ósjálfrátt upphátt við son minn sem lá eins og klessa, alveg upp við mig í sófanum,“ skrifar Bjarni í Morgunblaðið í dag.

Sonur Bjarna var fljótur til svars. „Hann var fljótur til svars: „Hann er ekki uppáhaldsleikmaðurinn minn lengur. Hvað er hann að pæla að yfirgefa Liverpool?“ svaraði hann á móti.“

Bjarni rekur svo magnaðan árangur Salah í treyju Liverpool og segir. „Þó að maður hafi reiknað með því að Salah myndi fara í sumar þá var það samt skellur að fá það staðfest. Ég þekki hann ekki neitt en eins fáránlegt og það hljómar þá hefur hann átt svo stóran þátt í mörgum gleðistundum hjá mér undanfarin níu ár að það er hálfvandræðalegt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

United hefur áhuga á leikmanni Barcelona sem vill ekki fara

United hefur áhuga á leikmanni Barcelona sem vill ekki fara
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Mættur í enska landsliðið en gæti farið frá Arsenal í sumar

Mættur í enska landsliðið en gæti farið frá Arsenal í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Blaðamaður Morgunblaðsins segir menn vísvitandi svindla – Kallar eftir breytingum

Blaðamaður Morgunblaðsins segir menn vísvitandi svindla – Kallar eftir breytingum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segja Liverpool að gleyma þeirri hugmynd að þessi maður fylli skarð Salah

Segja Liverpool að gleyma þeirri hugmynd að þessi maður fylli skarð Salah
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Strákarnir okkar léttir, ljúfir og kátir í kuldanum – Sjáðu frá æfingu liðsins

Strákarnir okkar léttir, ljúfir og kátir í kuldanum – Sjáðu frá æfingu liðsins
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir tíma til kominn að sýna konum þá virðingu að ráða almennilega dómara

Segir tíma til kominn að sýna konum þá virðingu að ráða almennilega dómara
433Sport
Í gær

Tvö ensk félög vilja Fabregas

Tvö ensk félög vilja Fabregas
433Sport
Í gær

Walcott varar ungstirni Arsenal við

Walcott varar ungstirni Arsenal við