
Cristiano Ronaldo Jr, 15 ára sonur Cristiano Ronaldo, æfir nú með U-16 ára liði Real Madrid.
Ronaldo Jr spilar sem framherji og er nú í akademíu Al-Nassr í Sádi-Arabíu, en það er sama félag og pabbi hans spilar fyrir.
Ronaldo Jr hefur áður verið í unglingaliðum Manchester United og Juventus, er faðir hans lék þar. Hann hefur einnig spilað fyrir U-15 landslið Portúgal.
Real Madrid fylgist náið með táningnum og æfir hann nú þar, en talið er að fleiri evrópsk stórlið hafi einnig áhuga.