

Michael Carrick hefur styrkt stöðu sína sem helsti kandídatinn til að taka við Manchester United til frambúðar eftir frábæran árangur sem bráðabirgðastjóri. Manchester Evening News segir frá þessu
Carrick hefur náð góðum úrslitum með liðið undanfarið og vakið athygli stjórnenda félagsins, sem eru nú að íhuga næstu skref varðandi þjálfaramál.
Samkvæmt heimildum standa nú aðeins tveir aðrir sterkir kostir eftir í baráttunni um starfið, þeir Luis Enrique, knattspyrnustjóri Paris Saint-Germain, og Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands.
Frammistaða Carrick hefur sett hann í lykilstöðu og gæti hann fengið starfið ef liðið heldur áfram á sömu braut. Manchester United vill þó vanda valið og mun taka endanlega ákvörðun þegar nær dregur sumri.
Næstu vikur gætu því skipt sköpum fyrir framtíð Carrick hjá félaginu.