fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
433Sport

Hneyksli hjá Real Madrid í kringum meiðsli Mbappe

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. mars 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kylian Mbappé, stjarna Real Madrid, er sagður hafa leikið meiddur í nokkrar vikur eftir mistök hjá læknateymi félagsins.

Franski framherjinn meiddist á hné í leik gegn Celta Vigo í desember og fór í myndatöku til að greina meiðslin. Samkvæmt spænskum miðlum var hins vegar skannað vitlaust hné, hægra í stað þess vinstra  og því fannst ekkert að í fyrstu.

Í kjölfarið hélt Mbappé áfram að spila og tók þátt í þremur leikjum til viðbótar áður en raunveruleg meiðsli komu í ljós. Þá kom í ljós að hann var með slit í liðbandi í hnénu.

Real Madrid staðfesti síðar að Mbappé væri meiddur, en lýsti meiðslunum sem tognun í opinberri yfirlýsingu á gamlársdag.

Málið hefur vakið athygli og spurningar um verklag læknateymis félagsins, þar sem mistökin gætu hafa haft áhrif á bataferli leikmannsins.

Mbappé, sem gekk til liðs við Real Madrid frá Paris Saint-Germain, er einn mikilvægasti leikmaður liðsins og meiðsli hans eru því mikið áfall fyrir félagið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tvö ensk félög vilja Fabregas

Tvö ensk félög vilja Fabregas
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þakklátur Sóli Hólm bregst við tíðindum gærdagsins – „Fyrstu viðbrögð eru uppnám“

Þakklátur Sóli Hólm bregst við tíðindum gærdagsins – „Fyrstu viðbrögð eru uppnám“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

United hefur mikinn áhuga á spænska stjóranum – Eftirsóttur víða

United hefur mikinn áhuga á spænska stjóranum – Eftirsóttur víða
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir tíðinda að vænta frá Anfield

Segir tíðinda að vænta frá Anfield
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar