

Margt bendir til þess að Viktor Gyokeres og fyrirsætan Ines Aguiar séu byrjuð aftur saman, ef marka má umfjöllun enskra götublaða.
Gyokeres er framherji Arsenal en þau hættu saman áður en hann skipti yfir til Englands frá Sporting í Portúgal.

Undanfarið hefur Aguiar gefið til kynna að hún og Gyokeres séu farin að stinga saman nefjum á ný, sér í lagi með því að birta myndir frá heimavelli Mansfield, hvar Arsenal spilaði bikarleik á dögunum.
Svíinn hefur átt þokkalegt fyrsta tímabil hjá Arsenal og nú virðast hlutirnir vera að smella hjá honum utan vallar.