

Heimir Hallgrímsson hefur skrifað undir nýjan samning sem landsliðsþjálfari Írlands og verður við stjórnvölinn fram yfir Evrópumótið 2028. Heimir skrifaði undir samninginn í gær.
Íslenski þjálfarinn, sem er 58 ára gamall hefur gert vel í starfi. Knattspyrnusamband Írlands vildi ganga frá málinu áður en liðið fer inn í mikilvæga umspilsleiki um sæti á Heimsmeistaramótinu.
Írland mætir Tékklandi í Prag næsta fimmtudag og vonast til að komast áfram í úrslitaleik á heimavelli gegn Danmörku eða Norður-Makedóníu.
HEimir hafði áður gefið í skyn að hann vildi bíða með samningsviðræður þar til eftir undankeppni eða mót, en sambandið lagði mikla áherslu á að klára málið fyrir umspilið.
„Við gerðum þetta í morgun, ég framlengdi samninginn minn fram yfir EM. Ég er ánægður hér og líkar vel við verkefnið,“ sagði Heimir.
Hann viðurkenndi að þrýstingur hefði verið frá sambandinu. „Ég ætlaði að gera þetta eftir undankeppni eða mót, en það var mikill þrýstingur á mig að skrifa undir fyrir þessa leiki,“ bætti hann við.
Þegar hann var spurður hvort nýi samningurinn fæli í sér launahækkun svaraði hann léttur í lund. „Ég held að þetta sé svipað og almenn launahækkun á Írlandi síðustu tvö ár.“
Framtíð Heimis með írska landsliðið er því tryggð næstu árin.