fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Einn nánasti samstarfsmaður Mourinho látinn eftir erfið veikindi

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Portúgalski markvarðaþjálfarinn Silvino Louro er látinn, 67 ára að aldri, eftir langvarandi veikindi.

Louro starfaði um árabil með Jose Mourinho og var einn af hans traustustu samstarfsmönnum. Þeir unnu saman hjá FC Porto, Chelsea, Inter Milan, Real Madrid og Manchester United.

Sem þjálfari átti Louro stóran þátt í þróun margra frábærra markvarða. Þar má nefna Vitor Baia, Petr Cech og Julio Cesar, sem allir voru valdir besti markvörður Evrópu á sínum tíma undir hans handleiðslu.

Eftir að fregnir bárust af andláti hans hafa fjölmargir fyrrum leikmenn og samstarfsmenn sent samúðarkveðjur. Petr Cech birti mynd af þeim saman og skrifaði einfaldlega „R.I.P.“.

Þá minntist John Terry hans með hlýjum orðum á samfélagsmiðlum og kallaði hann frábæran mann. Einnig sýndi David de Gea virðingu sína.

Louro var afar virtur innan knattspyrnuheimsins og skilur eftir sig stórt spor.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Grátlegt hjá Elíasi og félögum

Grátlegt hjá Elíasi og félögum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gylfi Þór tjáir sig um háværa orðróma – „Væri skrýtið en mjög gaman“

Gylfi Þór tjáir sig um háværa orðróma – „Væri skrýtið en mjög gaman“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Enn á ný skrifaði Messi söguna

Enn á ný skrifaði Messi söguna
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Gylfi fékk símtal frá Arnari í síðustu viku – „Það breytir engu þó ég sé 23 ára eða fertugur“

Gylfi fékk símtal frá Arnari í síðustu viku – „Það breytir engu þó ég sé 23 ára eða fertugur“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Handtekinn á Costa del Sol með fíkniefni á sér

Handtekinn á Costa del Sol með fíkniefni á sér
433Sport
Í gær

Mögulegt byrjunarlið Breiðabliks ef Jóhann Berg ákveður að koma heim

Mögulegt byrjunarlið Breiðabliks ef Jóhann Berg ákveður að koma heim
433Sport
Í gær

Virtur fjölmiðill segir United komið á fullt í viðræður við landsliðsmann Brasilíu

Virtur fjölmiðill segir United komið á fullt í viðræður við landsliðsmann Brasilíu