fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Bregðast við eftir fréttir vikunnar – Segja réttlætinu hafa verið fullnægt

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 20. mars 2026 07:30

Achraf Hakimi er stærsta stjarna Marokkó. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnusamband Marokkó hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að landinu var dæmdur sigur í Afríkukeppninni 2026.

Afríska knattspyrnusambandið ákvað að svipta Senegal sigrinum í úrslitaleiknum gegn Marokkó, þar sem liðið yfirgaf völlinn undir lok leiks án leyfis dómara. Er liðið talið hafa gefið leikinn með því, en niðurstaða þessi lá fyrir fyrr í vikunni.

Marokkó fær því titilinn. Knattspyrnusamband landsins fagnar niðurstöðunni og segir hana staðfesta mikilvægi þess að fylgja reglum keppninnar, en Marokkó hafði kært úrslitin, sem áfrýjunarnefnd afríska knattspyrnusambandsins tók svo til greina.

Í yfirlýsingu kom fram að markmið þeirra hafi aldrei verið að gera lítið úr frammistöðu liðanna heldur einungis að tryggja að reglur væru virtar.

Senegal ætlar að áfrýja niðurstöðunni til íþróttadómstóla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fluttur á sjúkrahús með tvö brotin rifbein eftir samstuð

Fluttur á sjúkrahús með tvö brotin rifbein eftir samstuð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Áfall í herbúðum Real Madrid

Áfall í herbúðum Real Madrid