fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. mars 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UEFA staðfesti í gær að Finalissima-leikurinn milli Spánar og Argentínu færi ekki fram.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram í Doha í Katar þann 27. mars, þar sem Evrópumeistarar Spánar og Suður-Ameríkumeistarar Argentínu áttu að mætast. Vegna stöðunnar í Miðausturlöndum var leiknum þó frestað.

Tilraunir voru gerðar til að finna nýjan leikstað og meðal annars var Santiago Bernabeu nefndur sem möguleiki. Argentínska knattspyrnusambandið samþykkti það hins vegar ekki, jafnvel þótt miðunum yrði skipt jafnt á milli stuðningsmanna.

Samkvæmt UEFA hafnaði argentínska sambandið einnig öðrum tillögum og vildi frekar spila leikinn eftir næsta heimsmeistaramót.

Í Finalissima mætast Evrópumeistarar og Suður-Ameríkumeistarar. Argentína vann leikinn síðast, árið 2022 gegn Ítalíu á Wembley. Keppnin hafði þá verið í dvala síðan 1993, þegar Argentína vann Danmörku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gjörsamlega sturlað mark á Santiago Bernabeu um helgina – Myndband

Gjörsamlega sturlað mark á Santiago Bernabeu um helgina – Myndband