

Kristján Óli Sigurðsson gerði upp íþróttaárið með Helga Fannari Sigurðssyni í viðhafnarútgáfu af Íþróttavikunni á 433.is.
Stórstjarnan Steven Caulker gekk í raðir Stjörnunnar í sumar og bætti varnarleik liðsins til muna. Liðið var óvænt mætt í titilbaráttu undir lok móts.
„Hann er skemmtilegur, enda alvöru prófíll sem hefur spilað með Tottenham og Liverpool. Hann er ekki farinn alveg niður fjallið,“ sagði Kristján, en Caulker yfirgaf Stjörnuna eftir tímabil.
„Varnarleikurinn breyttist mikið við komu hans í hjartað við hlið Gumma Kristjáns. Hann er farinn og þeir þurfa að fylla það skarð. Þá geta þeir alveg barist um eitthvað.“
Umræðan í heild er í spilaranum.