fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Pressan

Svona undirbýrð þú þig best fyrir flugferðina að sögn flugfreyju

Pressan
Föstudaginn 8. ágúst 2025 20:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru margir þættir sem ráða því hversu þægilegar flugferðir eru. Við getum auðvitað ekki haft nein áhrif á hvort það verði ókyrrð í lofti eða hvort aðrir farþegar hegði sér þolanlega. En ákveðnir þættir eru á okkar valdi og okkur til láns þá eru flugfreyjur, flugþjónar og flugmenn oft viljugir til að deila þekkingu sinni með okkur svo við getum undirbúið okkur sem best fyrir flugferðir.

Sonia Sevilla, flugfreyja hjá spænska flugfélaginu Level, veitti nýlega National Geographic innsýn í reynslubanka sinn og benti á eitt og annað sem fólk getur gert til að gera langar flugferðir þægilegri en ella.

Hún sagði að undirbúningur sé lykillinn og fyrsta, og um leið mikilvægasta ráð hennar, er að fólk reyni að fá sér blund áður en farið er út á flugvöll og einnig sé gott að hreyfa sig svolítið. Þetta geti fært fólki ótrúlega góða orku fyrir ferðina. Þegar komið er á áfangastað, ráðleggur hún fólki að aðlaga sig strax að hinu nýja tímasvæði ef það mun dvelja þar um lengri tíma.

Ef stoppið er stutt, þá segir hún að það geti borgað sig að halda sig við dægurrytma heimahaganna.

Hvað varðar máltíðir um borð í flugvélinni, þá ráðleggur hún fólki að velja létta rétti frekar en stórar og þungar máltíðir.

Hún segir að best sé að forðast áfengi því loftþrýstingurinn og hið þurra loft í farþegarýminu bæti við neikvæð áhrif þess. Vatn og jurtate eru hins vegar góðir valkostir.

Þægilegur klæðnaður er annar mikilvægur þáttur. Peysa eða teppi geta komið að góðu gagni því hitastigið sveiflast oft til.

Hún mælir einnig með notkun flugsokka til að tryggja gott blóðflæði í löngum flugferðum. Þá er gott að ganga öðru hvoru um farþegarýmið til að halda líkamanum gangandi og draga úr líkunum á bólgnum fótum.

Fyrir þá sem vilja hvíla sig á leiðinni eru svefngríma og eyrnatappar bráðnauðsynlegir að sögn Sevilla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Það eru fleiri bakteríur á vettlingunum þínum en klósettsetu

Það eru fleiri bakteríur á vettlingunum þínum en klósettsetu
Pressan
Í gær

Fór á stefnumót – Við tók áralangur hryllingur – Að lokum kom óhugnanlegur sannleikurinn í ljós

Fór á stefnumót – Við tók áralangur hryllingur – Að lokum kom óhugnanlegur sannleikurinn í ljós
Pressan
Í gær

Konur eru hamingjusamari án karla og barna – „Ef þú ert kona, slepptu því að giftast“

Konur eru hamingjusamari án karla og barna – „Ef þú ert kona, slepptu því að giftast“
Pressan
Í gær

Skelfileg sjón blasti við lögreglu í yfirgefnu húsi

Skelfileg sjón blasti við lögreglu í yfirgefnu húsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fékk ekki aðalhlutverkið i Titanic vegna smábeiðni frá Cameron

Fékk ekki aðalhlutverkið i Titanic vegna smábeiðni frá Cameron
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vilja sjálfstætt Austur-Grænland

Vilja sjálfstætt Austur-Grænland