fbpx
Föstudagur 11.júlí 2025
433Sport

Keyrði framhjá vettvangi rétt eftir slysið hjá Diogo Jota – Lofar fólki því að þeir keyrðu ekki of hratt

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 10. júlí 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Azevedo vörubílstjóri frá Portúgal segir það af og frá að Diogo Jota hafi verið að keyra of hratt þegar hann og bróðir hans létust í bílslysi í síðustu viku.

Lögreglan hefur tjáð sig með þeim hætti að líklega hafi bíllinn keyrt of hratt þegar Jota og bróðir hans Andre létu lífið.

„Ég tók þetta upp og stoppaði svo, ég reyndi að hjálpa en það var ekkert sem ég gat gert,“ segir Azevedo um slysið.

„Ég veit hvað gerðist þessa nótt, en ég vissi ekki hvað var í bílnum. Ég sendi samúðarkveðju á fjölskylduna.“

Hann lofar fjölskyldunni einu. „Fjölskyldan getur tekið mitt orð, þeir voru ekki að keyra of hratt. Ég sá bílinn og litinn á honum fyrir slysið, ég keyri þennan veg á hverjum degi.“

„Það er mikið myrkur á þessum vegi, því miður endaði þetta svona hjá þeim.“

Jota keyrði bílinn þegar hann og bróðir hans Andre létu lífið en Jota var 28 ára gamall framherji Liverpool.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Íslendingar láta gengið ekki á sig fá – Fjölmenntu þó langt væri í leik

Íslendingar láta gengið ekki á sig fá – Fjölmenntu þó langt væri í leik
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Aftur farnir að eltast við Garnacho

Aftur farnir að eltast við Garnacho
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United ræður mann í að klára nýjan völl – Vilja halda úrslitaleik HM árið 2035

United ræður mann í að klára nýjan völl – Vilja halda úrslitaleik HM árið 2035
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þarf fleiri sálfræðinga svo stelpurnar geti náð árangri? – „Aug­ljós­asta niðurstaðan í þessu öllu sam­an“

Þarf fleiri sálfræðinga svo stelpurnar geti náð árangri? – „Aug­ljós­asta niðurstaðan í þessu öllu sam­an“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United gengur frá kaupum á gríðarlega efnilegum leikmanni

United gengur frá kaupum á gríðarlega efnilegum leikmanni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Líklegt byrjunarlið í lokaleik Íslands – Færri breytingar en einhverjir vilja

Líklegt byrjunarlið í lokaleik Íslands – Færri breytingar en einhverjir vilja