Tveir leikmenn Manchester United yfirgáfu æfingasvæði liðsins í dag eftir aðeins 15 mínútur.
Frá þessu greina enskir miðlar en leikmennirnir tveir eru þeir Jesse Lingard og Anthony Martial.
Það er stór möguleiki á að þeir tveir verði ekki með í leik gegn Wolves í bikarnum um helgina.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri liðsins, staðfesti á blaðamannafundi að sumir væru að glíma við veikindi.
Bæði Martial og Lingard eyddu aðeins 15 mínútum á Carrington æfingasvæðinu en fóru svo heim stuttu síðar.