Pep Guardiola gæti snúið aftur til Barcelona einn daginn – þetta segir faðir hans, Valenti Guardiola.
Guardiola er í dag stjóri Manchester City og hefur undanfarin tvö ár unnið ensku úrvalsdeildina.
Spánverjinn lék lengi með Barcelona og hóf einnig magnaðan þjálfaraferil með félaginu.
,,Það gæti verið að hann snúi aftur en það yrði þá til að þjálfa,“ sagði faðir hans.
,,Síðan hann yfirgaf heimilið þá hefur hann alltaf tekið eigin ákvarðanir, ég hef aldrei ráðlagt honum.“