fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Þeir sem Maguire á að hafa beitt ofbeldi krefjast aðgerða – Vilja að hann fái bann frá fótbolta

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. mars 2026 11:00

Maguire og Fern kvöldið örlagaríka.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saksóknarar í Grikklandi hafa hvatt knattspyrnuyfirvöld til að grípa til aðgerða gegn Harry Maguire eftir að varnarmaður Manchester United var sakfelldur í áfrýjunarmáli vegna atviks sem átti sér stað á Mykonos árið 2020.

Maguire fékk 15 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm eftir að grískur áfrýjunardómstóll á eyjunni Syros komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði gerst sekur um minniháttar líkamsárás, mótspyrnu við handtöku og tilraun til mútugreiðslu.

Enski landsliðsmaðurinn hefur gagnrýnt málsmeðferðina harðlega og sagst ætla að áfrýja niðurstöðunni.

Ioannis Paradissis, lögmaður lögreglumannanna sem sögðust hafa slasast við að handtaka Maguire, gagnrýndi leikmanninn fyrir að hafa ekki beðist afsökunar og hvatti knattspyrnuyfirvöld til að skoða málið.

Í yfirlýsingu sagði Paradissis að lögreglumennirnir hefðu að minnsta kosti búist við afsökunarbeiðni. Hann sagði jafnframt óásættanlegt að lögreglumenn yrðu fyrir líkamsárás í starfi sínu.

Hann bætti við að íþróttayfirvöld ættu að skoða málið tafarlaust og ákveða hvort beita ætti viðurlögum.

Maguire þurfti ekki að mæta sjálfur fyrir dóm og spilaði með Manchester United í 2-1 tapi liðsins gegn Newcastle sama kvöld.

Málið var tekið fyrir nær sex árum eftir handtöku hans í slagsmálum í sumarfríi í Grikklandi. Maguire hafnaði einnig tilboði um að greiða um 43.500 pund til að ljúka málinu utan dómstóla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vonarstjarna Arsenal í klandri Í Frakklandi – Þurfa að borga meira eftir því sem hann spilar minna

Vonarstjarna Arsenal í klandri Í Frakklandi – Þurfa að borga meira eftir því sem hann spilar minna
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndir af vettvangi birtar – Lést eftir að lest á fullri ferð keyrði á hann

Myndir af vettvangi birtar – Lést eftir að lest á fullri ferð keyrði á hann
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þór og Víkingur sektuð um væna summu af KSÍ – „Enginn gerði athugasemd við að þeir væru með blys með sér“

Þór og Víkingur sektuð um væna summu af KSÍ – „Enginn gerði athugasemd við að þeir væru með blys með sér“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lögsækja Messi og Argentínu – Sakaðir um svik sem kostaði þá mikla peninga

Lögsækja Messi og Argentínu – Sakaðir um svik sem kostaði þá mikla peninga
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Niðurlægð af heimsfrægum manni: Bað stanslaust um nektarmyndir en svo lauk öllu skyndilega – „Hvers lags maður er þetta?“

Niðurlægð af heimsfrægum manni: Bað stanslaust um nektarmyndir en svo lauk öllu skyndilega – „Hvers lags maður er þetta?“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar
433Sport
Í gær

Tók kærustuna sína í bekkpressu – Sakaður um að hafa fallið á lyfjaprófi

Tók kærustuna sína í bekkpressu – Sakaður um að hafa fallið á lyfjaprófi