fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Liverpool opnar samtalið

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 6. mars 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur sett sig í samband við RB Leipzig yfir hugsanlegum skiptum Yan Diomande í sumar. Florian Plettenberg á Sky í Þýskalandi greinir frá þessu.

Talið er að Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, vilji styrkja sig fram á við í sumar, ekki síst þar sem óvissa ríkir um framtíð Mohamed Salah, sem og Federico Chiesa.

Liverpool hafði áður áhuga á Michael Olise hjá Bayern Munchen, en samkvæmt fréttinni er sá möguleiki ekki talinn raunhæfur lengur og því hafi athyglin beinst að Diomande.

Leipzig mun þó krefjast allt að 100 milljóna evra fyrir leikmanninn og það gæti reynst stór hindrun. Bayern Munchen hefur einnig fylgst með honum en hátt verð hefur haldið félaginu frá samningaviðræðum.

Diomande hefur átt gott tímabil í Þýskalandi með Leipzig og skorað tíu mörk auk þess að leggja upp sjö í 26 leikjum.

Liverpool gæti þó þurft að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð til að eiga raunhæfa möguleika á að landa Diomande.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra