

Sveinn Margeir Hauksson er mættur aftur í KA en hann skrifaði í dag undir lánssamning við félagið út sumarið 2026. Það er nær ómetanlegt að fá leikmann á borð við Svein Margeir inn í hópinn á þessum tímapunkti sem gjörþekkir KA umhverfið og verður virkilega gaman að sjá til hans í gula og bláa búningnum í sumar.
Sveinn Margeir sem er 24 gamall sóknarsinnaður miðjumaður ætti að vera öllum KA-mönnum vel kunnugur en hann gekk í raðir KA sumarið 2019 frá Dalvík/Reyni en Sveinn sem er frá Dalvík steig snemma sín fyrstu skref í meistaraflokki hjá Dalvík/Reyni. Þar sló hann í gegn og var meðal annars valinn í lið ársins í 3. deildinni sumarið 2018 á fotbolti.net. Hann sýndi snemma gæði sín í gula og bláa búningnum og vann sig jafnt og þétt upp í lykilhlutverk í KA-liðinu. Sveinn lék alls 115 leiki fyrir félagið í deild, bikar og Evrópu og gerði í þeim 17 mörk, þar af tvö gegn sterku liði Dundalk er KA sló Írska liðið út í Evrópuævintýri KA sumarið 2023.
Sveinn Margeir yfirgaf KA eftir fyrri hluta sumarsins 2024, en þá hafði hann verið einn besti leikmaður liðsins, er hann hélt til Bandaríkjanna þar sem hann útskrifaðist nú í janúar frá UCLA með Mastersgráðu í fjármálaverkfræði. Hann gekk í millitíðinni í raðir Íslandsmeistara Víkings en lenti í erfiðum hnémeiðslum sem hafa haldið honum frá vellinum. Hann hefur þó verið að koma sterkur til baka að undanförnu og tók meðal annars þátt í sínum fyrsta æfingaleik með Víkingum á dögunum.