fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Svarar fyrir ákvörðunina um Trent og framtíðina

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. mars 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel segir að viðbrögð Trent Alexander-Arnold við því að vera ekki valinn í landsliðshópinn séu skiljanleg.

Alexander-Arnold var óvænt skilinn eftir þegar Tuchel tilkynnti 35 manna hóp fyrir landsleikjagluggann. Eftir það birti bakvörðurinn skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem stóð. „Madrid. Og ekkert annað.“

Tuchel var spurður út í færsluna fyrir vináttuleik gegn Úrúgvæ og sagðist sýna leikmanninum skilning. „Sem viðbragð við því að vera ekki valinn? Já, það er alveg skiljanlegt,“ sagði hann.

Hann viðurkenndi að ákvörðunin hafi verið erfið. „Það er enginn vafi á hæfileikum hans eða því sem hann getur gefið liði. Þetta var einfaldlega íþróttaleg ákvörðun,“ bætti Tuchel við.

Þjálfarinn útskýrði að hann hafi byggt upp ákveðið leikskipulag án Alexander-Arnold og því hafi aðrir leikmenn fengið tækifæri.

Tuchel útilokaði þó ekki að leikmaðurinn komist í lokahópinn fyrir HM. „Hann er enn á lista og í myndinni. Ég mun fylgjast vel með honum,“ sagði hann.

Samkeppni um stöður í hægri bakverði er því hörð í enska landsliðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Yfirgefur Arsenal eftir fimm ár hjá félaginu

Yfirgefur Arsenal eftir fimm ár hjá félaginu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Máni segir framkomu íslenskra yfirvalda skítlega – Hvetur ríka knattspyrnumenn til að geyma peningana erlendis

Máni segir framkomu íslenskra yfirvalda skítlega – Hvetur ríka knattspyrnumenn til að geyma peningana erlendis
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Liverpool sagt vera í reglulegu sambandi við Alonso

Liverpool sagt vera í reglulegu sambandi við Alonso