fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Stjórnarmaður Bayern tjáir sig um Liverpool – „Við ætlum ekki að hjálpa þeim að verða betri á næsta ári“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. mars 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiðursforseti Bayern München, Uli Hoeness, hefur gagnrýnt félagaskiptagetu Liverpool harðlega á sama tíma og enska félagið er sagt hafa áhuga á kantmanninum Michael Olise.

Hoeness útilokar að Bayern muni selja Olise og skaut jafnframt á eyðslu Liverpool síðasta sumar.

„Ef þetta er satt sem ég trúi ekki, þá eyddi Liverpool 500 milljónum punda og er samt að eiga mjög slakt tímabil,“ sagði hann.

„Við ætlum ekki að hjálpa þeim að verða betri á næsta ári.“

Samkvæmt fréttum í Þýskalandi er Liverpool tilbúið að bjóða allt að 173 milljónir punda í Olise, en Real Madrid er einnig sagt tilbúið að leggja fram um 143 milljónir punda í sóknarmanninn.

Liverpool hefur átt erfitt uppdráttar þrátt fyrir mikla fjárfestingu í leikmönnum á borð við Alexander Isak, Florian Wirtz og Hugo Ekitike. Liðið, undir stjórn Arne Slot, situr sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og berst fyrir sæti í Meistaradeildinni.

Olise, sem er 24 ára, gekk til liðs við Bayern frá Crystal Palace sumarið 2024 fyrir 52 milljónir punda og á þrjú ár eftir af samningi sínum. Hann hefur staðið sig frábærlega í Þýskalandi með 16 mörk og 27 stoðsendingar í 39 deildarleikjum.

Talið er að Olise sé ánægður hjá Bayern, sem stefnir á þýska meistaratitilinn og mætir Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fjallað um áhuga úr stærstu deildunum á Ágústi Orra

Fjallað um áhuga úr stærstu deildunum á Ágústi Orra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Látin eftir hetjulega baráttu við krabbamein – „Það er erfitt að útskýra fyrir börnunum að mamma þeirra komi ekki heim“

Látin eftir hetjulega baráttu við krabbamein – „Það er erfitt að útskýra fyrir börnunum að mamma þeirra komi ekki heim“
433Sport
Í gær

Milljónamæringur gómaður við að keyra of hratt – Þarf að hósta upp rúmum 100 þúsund kalli

Milljónamæringur gómaður við að keyra of hratt – Þarf að hósta upp rúmum 100 þúsund kalli
433Sport
Í gær

Liverpool hefur einnig áhuga – Liðsfélagar hans einnig á blaði

Liverpool hefur einnig áhuga – Liðsfélagar hans einnig á blaði