
Jurgen Klopp, fyrrum stjóri Liverpool, hefur tjáð sig um yfirvofandi brottför Mohamed Salah.
Egyptinn tilkynnti á dögunum að hann væri á förum í sumar eftir níu farsæl ár, flest þeirra undir stjórn Klopp.
„Hann er einn af þeim allra bestu. Tölurnar hans eru ótrúlegar og verður erfitt að toppa þær,“ sagði Klopp.
„Ég vona að stuðningsmenn muni njóta síðustu leikja hans og geti kvatt hann með bros á vör,“ bætti Þjóðverjinn við.
Salah hefur sterklega verið orðaður við MLS-deildina og Sádi-Arabíu.