fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Heimir sár en segir þetta hughreysta sig eftir svekkjandi tap í gær

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 27. mars 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrst og fremst er þetta sárt,“ sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Írlands eftir grátlegt tap gegn Tékklandi í gær.

Liðin mættust í undanúrslitum umspils um sæti á HM vestan hafs í sumar. Írar komust í 2-0 en Tékkar tóku við sér, jöfnuðu og tryggðu framlengingu og vítaspyrnukeppni, sem þeir unnu svo.

Írar áttu frábæran lokasprett á undankeppninni til að tryggja sig inn í umspilið og unnu til að mynda Portúgal og Ungverja.

„Við þurfum að taka það með okkur að við getum spilað við lið sem eru hærra skrifuð en við og kýlt upp fyrir okkur, hvort sem það er gegn Portúgal, Ungverjalandi eða hér.

Við komum hingað með þrjá sigra í röð á bakinu og það er langt síðan það náðist hjá þessu landsliði. Svo við erum að vaxa og þroskast. Það hughreystir mig,“ sagði Heimir enn fremur.

Heimir skrifaði undir nýjan samning við írska knattspyrnusambandið á dögunum fram yfir EM 2028.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Áfall fyrir Rooney fjölskylduna

Áfall fyrir Rooney fjölskylduna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal skoðar mjög öflugan leikmann fyrir sumarið

Arsenal skoðar mjög öflugan leikmann fyrir sumarið
433Sport
Í gær

Spilafíkill hélt upp á afmæli sitt – Borgaði 40 milljónir og var með spilavíta þema

Spilafíkill hélt upp á afmæli sitt – Borgaði 40 milljónir og var með spilavíta þema
433Sport
Í gær

United hættir við ferð til Sádí Arabíu og fer í æfingaferð á áhugaverðan stað

United hættir við ferð til Sádí Arabíu og fer í æfingaferð á áhugaverðan stað