fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
433Sport

Spilafíkill hélt upp á afmæli sitt – Borgaði 40 milljónir og var með spilavíta þema

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. mars 2026 11:00

Ivan Toney. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ivan Toney, framherji enska landsliðsins, vakti athygli þegar hann hélt upp á þrítugsafmæli sitt með glæsilegu spilavítiþema í London.

Veislan fór fram á fimm stjörnu hóteli og var meðal annars boðið upp á rúllettuborð og svartan klæðaburð. Samkvæmt enskum blöðum kostaði hátíðin allt að 250 þúsund pund og vakti nokkra kátínu meðal gesta í ljósi fortíðar Toneys tengdrar veðmálum.

Toney var settur í átta mánaða bann árið 2023 eftir að hafa brotið reglur enska knattspyrnusambandsins með því að leggja 232 veðmál á leiki. Hann hefur sjálfur sagt að hann hafi glímt við spilafíkn á þeim tíma.

Meðal gesta í afmælinu voru þekktir knattspyrnumenn, þar á meðal Jack Grealish og leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni, auk þátttakenda úr raunveruleikaþáttunum Love Island.

Eftir að hafa snúið aftur úr banninu færði Toney sig til Sádi-Arabíu þar sem hann leikur nú með Al-Ahli eftir um 40 milljóna punda félagaskipti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Blaðamaður Morgunblaðsins segir menn vísvitandi svindla – Kallar eftir breytingum

Blaðamaður Morgunblaðsins segir menn vísvitandi svindla – Kallar eftir breytingum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Segja Liverpool að gleyma þeirri hugmynd að þessi maður fylli skarð Salah

Segja Liverpool að gleyma þeirri hugmynd að þessi maður fylli skarð Salah
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Skoða að selja framherja til að fjármagna kaup á Rashford

Skoða að selja framherja til að fjármagna kaup á Rashford
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Íslendingar á ferð og flugi um Evrópu næstu daga

Íslendingar á ferð og flugi um Evrópu næstu daga
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tvö ensk félög vilja Fabregas

Tvö ensk félög vilja Fabregas
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Walcott varar ungstirni Arsenal við

Walcott varar ungstirni Arsenal við
433Sport
Í gær

Goðsögn kemur ákvörðun Arteta til varnar og segir tapið geta hjálpað liðinu

Goðsögn kemur ákvörðun Arteta til varnar og segir tapið geta hjálpað liðinu
433Sport
Í gær

Þetta eru líklegustu áfangastaðir Salah

Þetta eru líklegustu áfangastaðir Salah