fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
433Sport

Hótar málsókn eftir að sagt var að fyrirsætur hafi verið á heimili hans

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. mars 2026 14:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Angel Di María hefur brugðist hart við ásökunum um einkalíf sitt og hótar nú blaðamanni lögsókn.

Argentínski kantmaðurinn, sem er 38 ára og leikur nú með Rosario Central, svaraði orðrómi á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt var að eiginkona hans, Jorgelina Cardoso, hefði orðið æst eftir að hafa uppgötvað að fyrirsætur hefðu komið inn á heimili þeirra án hennar vitundar.

Samkvæmt færslu sem dreifðist á netinu átti að hafa heyrst hávær rifrildi á heimili parsins, en nágrannar gátu ekki róað ástandið. Di María neitar þessum ásökunum alfarið og segir þær uppspuna.

Hann sakaði viðkomandi um að reyna að sverta mannorð sitt og fjölskyldu sinnar og sagði að ef slíkar fullyrðingar héldu áfram myndi hann fara í mál og krefjast skaðabóta.

Eiginkona hans brást einnig við og birti meðal annars símanúmer blaðamannsins sem setti fram ásakanirnar.

Di María hefur verið giftur Cardoso síðan 2011 og þau hafa fylgst að í gegnum feril hans, meðal annars þegar hann lék með Real Madrid og síðar Manchester United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Áhrif Salah ekki bara innan vallar – Hatursglæpum í Liverpool fækkað verulega

Áhrif Salah ekki bara innan vallar – Hatursglæpum í Liverpool fækkað verulega
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sonur Ronaldo að semja við eitt af hans gömlu félögum

Sonur Ronaldo að semja við eitt af hans gömlu félögum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Bjartsýnn á að geta spilað á næstu vikum

Bjartsýnn á að geta spilað á næstu vikum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Í vandræðum með klósettferðir eftir slys í síðustu viku

Í vandræðum með klósettferðir eftir slys í síðustu viku
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Segja góðan gang í að hefja framkvæmdir við nýjan völl United – Stefna á að opna á þessari dagsetningu

Segja góðan gang í að hefja framkvæmdir við nýjan völl United – Stefna á að opna á þessari dagsetningu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Skoða að selja framherja til að fjármagna kaup á Rashford

Skoða að selja framherja til að fjármagna kaup á Rashford