
Theo Walcott segir að Max Dowman, ungstirni Arsenal, ætti ekki að fara á HM í sumar ef kallið kemur frá enska landsliðinu.
Walcott, sem einnig lék með Arsenal lengst af, var sjálfur aðeins 17 ára þegar hann var óvænt valinn í HM-hóp Englands árið 2006, en segist í dag sjá eftir því.

„Ef ég gæti farið aftur í tímann myndi ég segja nei,“ sagði Walcott.
Hann telur Dowman, sem er aðeins 16 ára gamall og hefur vakið gríðarlega athygli með Arsenal þrátt fyrir það, þurfa tíma til að þroskast.
„Hann þarf að þróast á sínum hraða, sérstaklega andlega,“ sagði Walcott og benti jafnframt á að aðrir leikmenn enska landsliðsins væru framar en Dowman í goggunarröðinni eins og staðan er.