fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
433Sport

Tölfræðin er Strákunum okkar í hag

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. mars 2026 15:00

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og knattspyrnuáhugafólki er eflaust kunnugt um eru framundan vináttuleikir A-landsliðs karla við Kanada 28. mars og Haíti 31. mars. Báðir leikir fara fram á BMO Field í Toronto.

Ísland og Kanada hafa fjórum sinnum áður mæst í A-landsliðum karla og í öllum tilfellum hefur verið um vináttuleiki að ræða. Tvisvar hafa liðin skilið jöfn og tvisvar hefur Ísland fagnað sigri. Þrír leikjanna hafa verið í janúarglugga, þar sem leikmenn úr stærri deildum voru ekki til taks.

Fyrst mættust liðin á Laugardalsvelli árið 2007 og gerðu 1-1 jafntefli, þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði mark Íslands.

Því næst léku liðin tvo leiki í Flórída í janúar 2015 þar sem Ísland vann fyrri leikinn 2-1 (mörk Íslands skoruðu Kristinn Steindórsson og Matthías Vilhjálmsson) og 1-1 jafntefli (mark Íslands skoraði Hólmbert Friðjónsson) var niðurstaðan í seinni leiknum.

Loks mættust liðin í Kaliforníu í janúar 2020 og þar vann íslenska liðið 1-0 sigur með marki frá Hólmari Erni Eyjólfssyni.

Ísland og Haítí hafa aldrei áður mæst í A-landsliðum karla og raunar hefur ekkert íslenskt knattspyrnulandslið áður mætt Haítí.

Leikirnir verða í opinni dagskrá á Sýn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fjöldi manns handtekinn í tengslum við veðmálahneyksli

Fjöldi manns handtekinn í tengslum við veðmálahneyksli
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Margt bendir til þess að ofurparið sé farið að stinga saman nefjum á ný – Þetta gerði útslagið

Margt bendir til þess að ofurparið sé farið að stinga saman nefjum á ný – Þetta gerði útslagið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Liverpool og United áhugasöm

Liverpool og United áhugasöm
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney setur stórt spurningamerki við stöðu stjörnunnar – Líkir því við góðgerðastarfsemi þegar hann var settur inn á

Rooney setur stórt spurningamerki við stöðu stjörnunnar – Líkir því við góðgerðastarfsemi þegar hann var settur inn á
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Eyjamenn stórhuga – Segir metnað og framtíðarsýn gjarnan hafa skort

Eyjamenn stórhuga – Segir metnað og framtíðarsýn gjarnan hafa skort
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Spænski stjórinn gæti söðlað um innan ensku úrvalsdeildarinnar

Spænski stjórinn gæti söðlað um innan ensku úrvalsdeildarinnar