
Mikið er rætt og ritað um framtíð Arne Slot í stjórastólnum hjá Liverpool.
Hollendingurinn tók við fyrir síðustu leiktíð og gerði frábærlega á sínu fyrsta tímabili, þegar Liverpool varð Englandsmeistari.
Slot hefur hins vegar ekki tekist að fylgja því eftir á þessari leiktíð. Liðið er í fimmta sæti og alls ekki víst að það komist í Meistaradeildina fyrir næstu leiktíð.
Margir stuðningsmenn vilja losna við Slot og blaðamaðurinn Kevin Palmer segir að tíðinda gæti verið að vænta á næstunni af stjóramálum Liverpool.
Þar gefur hann einnig í skyn að Xabi Alonso, fyrrum leikmaður Liverpool og Real Madrid, gæti tekið við. Hann hefur verið án starfs frá því Real Madrid lét hann fara fyrr á tímabilinu og hefur hann verið orðaður við starfið á Anfield.