fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
433Sport

Blaðamaður Morgunblaðsins segir menn vísvitandi svindla – Kallar eftir breytingum

433
Miðvikudaginn 25. mars 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Ingi Hafþórsson, blaðamaður Morgunblaðsins, hefur fengið nóg af því að knattspyrnumenn svindli og séu vísvitandi að tefja leikinn.

Þetta kemur fram í grein frá Jóhanni í Morgunblaði dagsins en hann tekur dæmi eftir að hafa legið yfir sjónvarpinu um helgina

„Hann byrjaði á að ræða úrslitaleik í enska deildarbikarnum þar sem Manchester City vann sannfærandi sigur á Arsenal. „Hvað eftir annað gerðu leikmenn beggja liða rosalega mikið úr nákvæmlega ekki neinu og lágu eftir þegar það var ekkert að þeim,“ skrifar Jóhann í Morgunblaðið og heldur áfram.

„Viktor Gyökeres framherji Arsenal fékk t.a.m. spjald á varnarmann City þegar hann hrundi niður við litla snertingu, hélt lengi um ökklann á sér og lá eftir. Hinum megin lá Rayan Cherki eftir lengi, kvartaði og kveinaði og glotti síðan í myndavélina til að viðurkenna að hann hafi nú verið að leika sér smá. Þessi hegðun leikmanna hefur færst í vöxt undanfarin ár og hún er hundleiðinleg.“

Jóhann fór næst yfir leik Leeds og Brentford þar sem hann fékk sig fullsaddan af svindli. „Þar kom upp atvik í seinni hálfleik. Leeds gerði tvöfalda skiptingu og mínútu síðar settist Caoimhin Kelleher markvörður Brentford í grasið og þóttist vera meiddur. Allir leikmenn Brentford fóru á fund á hliðarlínunni til að ræða hvernig ætti að bregðast við skiptingunni. Allir vissu hvað var að gerast en dómarinn varð að stöðva leikinn.“

Það þarf einhvers konar reglubreytingu til að lið hætti að hægja á leikjum með hreinu svindli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Segir tíma til kominn að sýna konum þá virðingu að ráða almennilega dómara

Segir tíma til kominn að sýna konum þá virðingu að ráða almennilega dómara
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sonur Ronaldo æfir með Real Madrid – Þó nokkur áhugi á honum

Sonur Ronaldo æfir með Real Madrid – Þó nokkur áhugi á honum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Senda frá sér yfirlýsingu í kjölfar mikillar reiði – Umdeildur þjóðernissinni kom í heimsókn

Senda frá sér yfirlýsingu í kjölfar mikillar reiði – Umdeildur þjóðernissinni kom í heimsókn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United hefur mikinn áhuga á spænska stjóranum – Eftirsóttur víða

United hefur mikinn áhuga á spænska stjóranum – Eftirsóttur víða
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Pirringur vegna síðasta sumars gæti haft áhrif á leit Liverpool að eftirmanni Salah

Pirringur vegna síðasta sumars gæti haft áhrif á leit Liverpool að eftirmanni Salah
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar

Raunverulegur möguleiki á skiptum lykilmannsins í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segist sakna enska boltans

Segist sakna enska boltans