fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
433Sport

Lýsti því í smáatriðum hvað hann vildi gera við fyrrverandi í rúminu ef hún tæki honum aftur – Hún sýndi allt í sjónvarpsþætti

433
Sunnudaginn 22. mars 2026 21:34

Wanda Nara og Mauro Icardi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wanda Nara og Mauro Icardi áttu lengi vel eitt stormasamasta samband í knattspyrnuheiminum, og hefur það haldið áfram eftir skilnað þeirra.

Icardi, sem er leikmaður Galatasaray í Tyrklandi í dag, og Wanda hófu samband sitt meira að segja á fremur stormasaman hátt, en hún var áður í sambandi við Maxi Lopez, liðsfélaga og vin Icardi. Voru þau enn saman þegar Icardi og Wanda fóru að stinga saman nefjum.

Wanda og Icardi giftu sig 2014 og voru hamingjusömu í nokkur ár áður en hvert hneykslið rak annað. Icardi er talinn hafa haldið framhjá marg oft. Wanda fyrirgaf honum reglulega en að lokum hættu þau alfarið saman og eru fráskilin í dag.

Icardi gafst þó ekki upp auðveldlega undir það síðasta og fór hann mismunandi leiðir að því að reyna að halda í Wöndu. Í sjónvarpsþætti árið 2024 opinberaði Wanda skilaboð frá honum þar sem hann bað um annað tækifæri. Voru þau vægast sagt klúrin. Lýsti framherjinn því til dæmis í smáatriðum hvað hann vildi gera við hana.

Það gekk þó ekki en Icardi reyndi áfram. Hann er sagður hafa mætt heim til Wöndu eitt kvöldið og hótað því að birta myndefni sem hann hefði undir höndum frá því í hjónabandinu, sennilega klúrið.

Þetta bar þó ekki heldur árangur og eru flestir á því að sambandi Wöndu og Icardi sé í dag endanlega lokið, en bæði hafa verið orðuð við annað fólk síðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum

Ísraelar fá þunga sekt og er gert að vera með borða á næstu leikjum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“

Benedikt botnar ekki í feluleiknum hér á landi þegar kemur að þessu – „Það er allt svo mikið leyndarmál“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni

Arteta sagður skoða að breyta til í sóknarlínunni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate

Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu vegna kynþáttaníðs í garð Konate
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu

Fullyrt að Tottenham sé að selja markvörðinn sinn til Ítalíu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Salah meiddur og verður ekki með Liverpool um helgina

Salah meiddur og verður ekki með Liverpool um helgina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent