fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Þarf að dúsa áfram í fangaklefa eftir að hafa buffað mann á golfvelli – „Þú hefðir átt að haga þér betur“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. mars 2026 14:30

Joey Barton - Eiginkona hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Joey Barton verður áfram í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið ákærður fyrir alvarlega líkamsárás.

Barton var úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 10. mars eftir meinta árás nærri Huyton og Prescot golfklúbbnum í Merseyside. Fórnarlambið, Kevin Lynch, var fluttur á sjúkrahús með meiðsli á andliti og rifbeinum. Samkvæmt upplýsingum fyrir dómi er hann í alvarlegu en stöðugu ástandi, en hætta er á að hann missi sjón á öðru auga.

Barton er ákærður fyrir líkamsárás sem olli alvarlegum meiðslum og verður í haldi fram að næstu þingfestu málsins sem fer fram 7. apríl. Beiðni hans um lausn gegn tryggingu var hafnað af dómara.

Meðákærði í málinu, Gary O’Grady, hefur hins vegar verið látinn laus gegn tryggingu. Fyrir dómi kom fram að Lynch, sem er 51 árs, hafi verið á golfklúbbnum með Barton og O’Grady þar sem þeir höfðu neytt áfengis. Ágreiningur hafi komið upp milli þeirra áður en þeir fóru út fyrir, þar sem vitni lýsti því að maður hefði verið sleginn, sparkað í hann og traðkað á honum.

Einnig var haft eftir vitnum að Barton hafi sagt við Lynch meðan á árásinni stóð: „Þú hefðir átt að haga þér betur.“

Lögregla var með mikinn viðbúnað á svæðinu og óskaði eftir vitnisburði frá íbúum og myndbandsupptökum.

Barton, sem hóf feril sinn hjá Manchester City, lék síðar með Newcastle, QPR, Marseille, Burnley og Rangers áður en hann lagði skóna á hilluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Einn nánasti samstarfsmaður Mourinho látinn eftir erfið veikindi

Einn nánasti samstarfsmaður Mourinho látinn eftir erfið veikindi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

United og Liverpool á eftir manni sem er nýkominn til Englands

United og Liverpool á eftir manni sem er nýkominn til Englands
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Víkingur með ógnarsterkan hóp og stórhuga fyrir sumarið – „Það er mikil samkeppni, alveg eins og við viljum hafa það“

Víkingur með ógnarsterkan hóp og stórhuga fyrir sumarið – „Það er mikil samkeppni, alveg eins og við viljum hafa það“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Enn á ný skrifaði Messi söguna

Enn á ný skrifaði Messi söguna