

Mohamed Salah verður ekki með Liverpool í næsta leik liðsins gegn Brighton vegna meiðsla, að sögn Arne Slot stjóra liðsins en liðið heimsækir Brighton um helgina.
Hollenski knattspyrnustjórinn staðfesti að egypski sóknarmaðurinn væri ekki tilbúinn í leikinn og muni einnig missa af komandi landsleikjahléi með Egyptalandi.
„Hann verður ekki með gegn Brighton og fer heldur ekki með landsliðinu,“ sagði Slot.
Þetta er áfall fyrir Liverpool en Salah skoraði gott mark í vikunni gegn Galatasaray.
Ekki liggur enn fyrir hversu alvarleg meiðslin eru eða hvenær Salah snýr aftur á völlinn. Liverpool vonast þó til að hann verði ekki lengi frá og geti snúið aftur sem fyrst.