

Liverpool hefur fordæmt harðlega kynþáttaníð sem beinst hefur að varnarmanninum Ibrahima Konate á samfélagsmiðlum.
Í yfirlýsingu frá félaginu segir að hegðunin sé viðbjóðsleg og óásættanleg og eigi sér enga stoð í knattspyrnu né samfélaginu almennt. Félagið leggur áherslu á að leikmenn séu manneskjur, ekki skotmörk, og að slíkt ofbeldi sé skaðlegt bæði leikmönnum og fjölskyldum þeirra.
„Rasismi á engan stað í fótbolta, samfélaginu eða annars staðar, hvorki á netinu né utan þess,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Liverpool gagnrýnir jafnframt samfélagsmiðlafyrirtæki fyrir að gera ekki nóg til að stöðva slíka hegðun. Félagið telur að tæknin og úrræðin séu til staðar, en að skortur á aðgerðum geri það að verkum að hatursorðræða fær að blómstra.
„Að leyfa rasískum árásum að dreifast án eftirlits er val,“ segir í yfirlýsingunni.
Liverpool segist ætla að styðja Konate áfram og vinna með yfirvöldum að því að finna þá sem bera ábyrgð. Jafnframt er kallað eftir því að fótboltasamfélagið standi saman gegn slíku ofbeldi.
Félagið undirstrikar að ekki sé nóg að fordæma með orðum einum saman, það þurfi að grípa til aðgerða strax.