fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Formaðurinn sáttur með sögulegan samning – Goðsögn hannaði treyjuna

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 20. mars 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Gunnlaugsson, formaður Knattspyrnudeildar Víkings, var að vonum kátur eftir að félagið kynnti samstarf sitt við Boozt, sem varð um leið stærsti samningur í sögu félagsins.

Margmenni var í Víkinni í gær þegar tilkynnt var um samstarfið og öllu tjaldað til.

video
play-sharp-fill

„Þetta leggst frábærlega í mig. Ég átti ekki von á svona mörgum hérna í dag svo ég er mjög glaður með það líka. Þessi samningur hefur mjög mikla þýðingu fyrir okkur.

Við erum að fá stóran alþjóðlegan styrktaraðila á fjögurra ára samningi. Okkur finnst við hafa sýnt með árangri í Evrópu að við erum orðinn eftirtektarverður aðili til að semja við fyrir erlenda aðila. Þetta er gríðarleg gleðistund,“ sagði Heimir við 433.is.

Halldór Smári Sigurðsson, goðsögn hjá Víkingi, hannaði þá nýja treyju sem var frumsýnd samhliða, en hann hefur hannað síðustu treyjur félagsins.

„Halldór Smári hefur hannað síðustu búninga fyrir okkur. Hann kom með grunnhugmyndina og fór svo til Bologna í lokahönnunina með Macron. Öll smáatriði í búningnum koma frá Halldóri Smára og það er glæsilegt að hafa hann með okkur í þessari hönnun,“ sagði Heimir enn fremur.

Nánar er rætt við hann í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bregðast við eftir fréttir vikunnar – Segja réttlætinu hafa verið fullnægt

Bregðast við eftir fréttir vikunnar – Segja réttlætinu hafa verið fullnægt
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Grátlegt hjá Elíasi og félögum

Grátlegt hjá Elíasi og félögum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gylfi Þór tjáir sig um háværa orðróma – „Væri skrýtið en mjög gaman“

Gylfi Þór tjáir sig um háværa orðróma – „Væri skrýtið en mjög gaman“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Setja samtalið við Sancho á fullt fyrir sumarið – Vilja fá hann frítt

Setja samtalið við Sancho á fullt fyrir sumarið – Vilja fá hann frítt
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann
Hide picture