
Elías Rafn Ólafsson og félagar í Midtjylland töpuðu á grátlegan hátt fyrir Nottingham Forest í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.
Danska liðið vann fyrri leikinn á Englandi 0-1 en Forest vann 1-2 í kvöld í venjulegum leiktíma. Liðið hafði svo betur í vítaspyrnukeppni, 0-3.
Freiburg vann 5-1 sigur á Genk á sama tíma, 5-2 samanlagt. Celta Vigo sló Lyon þá úr leik með sterkum 0-2 útisigri, 1-3 samanlagt.