fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. mars 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dominik Szoboszlai var afar ósáttur eftir að Liverpool missti niður forystuna gegn Tottenham á Anfield í gær.

Szoboszlai kom Liverpool yfir á 18. mínútu með sínu þriðja aukaspyrnumarki í deildinni á tímabilinu. Liverpool náði þó ekki að klára leikinn og Richarlison jafnaði metin í uppbótartíma og stöðvaði þar með sex leikja taphrinu Tottenham.

Liverpool missti þar með af tækifæri til að komast upp í fjórða sæti deildarinnar eftir að Manchester United hafði unnið 3-1 sigur á Aston Villa fyrr um daginn.

„Ég veit ekki hvað gerðist, ég hef eiginlega ekkert að segja. Aftur fáum við á okkur mark á síðustu mínútu. Ég veit ekki hversu oft þetta hefur gerst á tímabilinu. Við verðum að vakna,“ sagði Szoboszlai í viðtali eftir leik.

„Það eru átta eða níu leikir eftir. Ef við höldum áfram svona þá eigum við að vera ánægðir ef við spilum í Sambandsdeildinni á næsta tímabili.“

Stuðningsmenn Liverpool létu óánægju sína í ljós og bauluðu í leikslok. Szoboszlai sagðist skilja viðbrögðin en kallaði eftir stuðningi.

„Við skiljum þetta, við erum ekki að standa okkur eins og við eigum að gera. En við þurfum líka á stuðningi að halda á erfiðum kafla.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar