fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Sonur Beckham virðist hjóla í bróður sinn í nýrri færslu – Sjáðu hvað hann skrifaði

433
Mánudaginn 16. mars 2026 11:30

Systkinin Cruz, Brooklyn og Harper Beckham, ásamt Nicolu Peltz eiginkonu Brooklyn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yngsti sonur Beckham-hjónanna, Cruz Beckham, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum eftir myndband sem margir telja vera skot á eldri bróður hans.

Cruz Beckham birti myndband á TikTok þar sem hann eldar kartöflusúpu frá grunni. Með færslunni skrifaði hann: „Viltu sjá besta eldunarmyndband allra tíma? Þá skaltu ekki horfa á þetta.“

Myndbandið hefur farið mikinn á netinu og fengið um 3 milljónir áhorfa. Margir telja að færslan sé skot á eldri bróður hans, Brooklyn Beckham, sem birtir reglulega eldunarmyndbönd á sínum miðlum. Hafa þau verið nokkuð gagnrýnd og þykja mörg hver ógirnileg.

Samskipti bræðranna hafa verið til umræðu að undanförnu eftir að Brooklyn birti langa yfirlýsingu á Instagram þar sem hann sagðist ekki vilja sættast við fjölskyldu sína eftir miklar erjur. Þar sakaði hann meðal annars foreldra sína, David Beckham og Victoriu Beckham, um að hafa reynt að skaða samband hans við eiginkonuna Nicola Peltz.

Beckham-hjónin hafa ekki svarað ásökununum opinberlega. Þau óskuðu honum þó til lukku með afmæli hans nýlega og það gerði Cruz einnig. „Ég elska þig,“ skrifaði hann einnig til bróður síns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar