fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

433
Mánudaginn 16. mars 2026 11:00

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjörnumenn fengu rasskell, 0-4, gegn KR í undanúrslitum Lengjubikars karla á laugardag.

Stjarnan sá aldrei til sólar í leiknum og á sama tíma voru KR-ingar frábærir. Þetta var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.

„Menn í Garðabænum eru bara í nettu áfalli. Menn eru spenntir fyrir þessu liði og það er búið að leggja mikið í þetta. Svo kemur þetta,“ sagði Jóhann Már Helgason þar, en lið Stjörnunnar hafði verið sjóðheitt á undirbúningstímabilinu fram að þessu.

Stjarnan náði Evrópusæti í fyrra og voru í toppbaráttu við Víking um stutt skeið. Þrátt fyrir það flýgur sú saga að Jökull Elísabetarson þjálfari sé valtur í sessi nú þegar tæpur mánuður er í mót, eftir því sem Jóhann segir.

„Þeir voru mjög takmarkaðir í fyrra. Þeir slysuðust inn í toppbaráttuna. Ef þetta verður áframhald af þessu, maður hefur heyrt að Jökull sé á þunnum ís komandi inn í mótið,“ sagði hann og Sigurður Gísli Bond tók undir.

„Ég held hann sé í heitasta sætinu,“ sagði Sigurður, og á þar við samanborið við aðra þjálfara í Bestu deild karla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar