fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. mars 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Micah Richards vakti athygli þegar hann spurði Wayne Rooney um þjálfaraferil hans í þættinum Match of the Day í gær.

Þeir voru þar ásamt þáttastjórnandanum Mark Chapman og ræddu meðal annars leik Liverpool og Tottenham. Mikil umræða skapaðist um 17 ára gamla kantmanninn Rio Ngumoha sem var valinn maður leiksins eftir frammistöðu sína á Anfield.

„Hann er beinskeyttur og jákvæður. Það er frábært að horfa á hann,“ sagði Rooney til að mynda. Richards spurði þá hvort Rooney hefði hvatt sína leikmenn til að spila á sama hátt þegar hann var þjálfari.

„Það gekk nú ekki svo vel!“ svaraði Rooney og uppskar mikinn hlátur, en ferill hans í þjálfun hefur aldrei náð flugi. Richards tók fram að hann hafi ekki meinað þetta illa, en uppákomuna má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gjörsamlega sturlað mark á Santiago Bernabeu um helgina – Myndband

Gjörsamlega sturlað mark á Santiago Bernabeu um helgina – Myndband