fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. mars 2026 14:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reece James, fyrirliði Chelsea, er meiddur aftan á læri og gæti verið frá í þó nokkrar vikur.

James, sem er 26 ára, undirritaði nýjan sex ára samning við Chelsea í síðustu viku. Hann missti af æfingu liðsins í dag fyrir leikinn gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni.

Þetta eru tíundu meiðsli James aftan á læri síðan desember 2020. Kemur þetta á afar vondum tíma, en liðið þarf að vinna upp þriggja marka forskot gegn PSG og er í hörku baráttu um Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni.

Ljóst er að James mun einnig missa af komandi vináttulandsleikjum Englands síðar í mánuðinum, en hann vonast til að vera með á HM vestan hafs í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gjörsamlega sturlað mark á Santiago Bernabeu um helgina – Myndband

Gjörsamlega sturlað mark á Santiago Bernabeu um helgina – Myndband